Silfrið hentar best fyrir þá sem þurfa mikið pláss fyrir einn vef eða eru með marga litla vefi undir sinni stjórn. Skipta má yfir í Gull-hýsingu þegar plássleysi fer að segja til sín.Allir kostir grunnhýsingarinnar er hér til staðar (sjá í lýsingu
grunnhýsingar) en án takmarka á fjölda netfanga, undirléna eða annars.
Einu takmörkin eru plássið en hægt er að koma fyrir töluverðu af
forritum og gögnum í 4GB. Bandvíddin er 60GB en ef vefurinn verður
svo vinsæll að ná þar upp eru menn í góðum málum vinsældarlega séð.
Fram að þessu eru hæstu tölur vinsælustu heimasíðnanna um 3% af
þessu.
Eins og í grunnhýsingunni geta menn boðið upp á ftp þjónustu frá vefsvæðinu, framsendingu
netfanga, mörg netföng send á eitt og einnig eitt netfang sent á marga og svo póstlistana (Mailman).
Lénsherrann hefur mikla stjórn á vefsvæðinu í gegn um
cpanel
stjórnborðið og getur stofnað ný lén og undirlén. Lénin geta vísað á
sér vefi (Add On) eða mörg vísað á sama vefinn (Parked). Með File
Manager (í cpanel) má sækja skrár, flytja til og opna zip pakkaðar
skrár. Einnig er hægt með File Manager að breyta skrám beint á
vefsvæðinu. Vissulega er einnig hægt að sækja og senda skrár til og frá
vefsvæðinu með ftp og í cpanel er hægt að stofna ftp notendur að vild,
hvern með sýnar aðgangsheimildir.
Notendur þjónustunnar hafa hrósað mjög þeim sveigjanleika og stjórn sem þeir hafa.
Í gagnamiðstöðinni þar sem vefþjónarnir eru vistaðir er tekið daglegt
afrit af öllum gögnum en vefþjónarnir eru með speglaða geymslumiðla sem
minnkar verulega líkurnar á að grípa þurfi nokkurtíman til
afritsins. Gagnamiðstöðvarnar eru með mikla öryggisgæslu og eldvarnir.
Uppitími netsins er næstumþví gulltryggt í 100% (ath. ekki sama og
uppitími vefþjóns). Við höfum vefþjónana okkar 100% fyrir okkar
viðskiptavini sem gerir okkur óháða vefkeyrslum annarra.
Setja í körfu Aftur í vörulista