Gull hýsingin er ætluð atvinnumönnum í vefhönnun og þeim sem þurfa mikið pláss fyrir t.d myndir en einnig þá sem eru með marga vefi.Sumir vefhönnuðir vilja geta boðið viðskiptavinum sýnum alhliða
þjónustu og gullið er tilvalið þar sem margir vefir (mörg lén) geta
verið undir einum hatti, annaðhvort sem algjörlega aðskildir vefir eða
fleiri en eitt lén að vísa á einn vef.
Gullið er stóribróðir Silfursins hvað pláss varðar. Allir kostir
silfurhýsingarinnar er hér til staðar en með 6GB í viðbót. Hægt er að koma
fyrir töluverðu af
forritum og gögnum í 15GB. Bandvíddin er 150GB en ef vefurinn verður
svo vinsæll að ná þar upp eru menn í góðum málum vinsældarlega séð. Hægt er að velja um
PLESK stjórnborðið eða
CPanel
stjórnborðið (CPanel hefur almennt fleiri möguleika og er sveigjanlegra
hvað varðar undirlén og "parked" lén. PLESK er hraðvirkara og mörgum
finnst það einfaldara).
Eins og í grunnhýsingunni geta menn boðið upp á ftp þjónustu frá
vefsvæðinu, framsendingu
netfanga, mörg netföng send á eitt og einnig eitt netfang sent á marga
og svo póstlistana (Mailman). Gullið eins og Silfrið býður bæði upp á
mySql gagnagrunna
og Postgres gagnagrunna.
Með File
Manager (í cpanel) má sækja skrár, flytja til og opna zip pakkaðar
skrár. Einnig er hægt með File Manager að breyta skrám beint á
vefsvæðinu. Vissulega er einnig hægt að sækja og senda skrár til og frá
vefsvæðinu með ftp og í cpanel er hægt að stofna ftp notendur að vild,
hvern með sýnar aðgangsheimildir.
Notendur þjónustunnar hafa hrósað mjög þeim sveigjanleika og stjórn sem þeir hafa í CPanel.
Í gagnamiðstöðinni þar sem vefþjónarnir eru vistaðir er tekið daglegt
afrit af öllum gögnum en vefþjónarnir eru með speglaða geymslumiðla sem
minnkar verulega líkurnar á að grípa þurfi nokkurtíman til
afritsins. Gagnamiðstöðvarnar eru með mikla öryggisgæslu og eldvarnir.
Uppitími netsins er næstumþví gulltryggt í 100% (ath. ekki sama og
uppitími vefþjóns). Við höfum vefþjónana okkar 100% fyrir okkar
viðskiptavini sem gerir okkur óháða vefkeyrslum annarra.
Setja í körfu Aftur í vörulista