Forsíða arrow Hjálp og hjálpartól
Hjálp og hjálpartól


Hvað ef ég týni aðgangslyklinum? PDF Prenta Senda
Stjórnborðið

Glatir þú aðgangslyklinum geturðu fengið tölvupóst sendan sem gefur þér kost á að breyta lykilorðinu.

  1. Opnaðu stjórnborðið þ.e. innskráningu inn á stjórnborðið.
  2. Smelltu á Cancel eins og þú ætlir að hætta við.
  3. Á skjánum birtist valmynd þar sem hægt er að setja inn notendanafn og biðja um "Password reset".  Tölvupósturinn verðu sendur á það netfang sem við höfum á skrá fyrir eiganda eða vefstjóra vefsvæðisins.
meira...
 
Uppsetning léna með stjórnborðinu (cPanel) PDF Prenta Senda
Uppsetning og umsýsla léna

Til eru tvær megin leiðir við uppsetningu léna á vefsvæðum. Önnur heitir Parked Domains og hin heitir Addon Domains. Parked domain er lén sem er lagt ofan á annað lén og vísar í raun á sömu vefsíðu/heimasíðu. Hjá okkur eru enging takmörk fyrir því hversu mörg lén geta vísað á sömu vefsíðu.

meira...
 
Uppsetning viðbótarléna (Addon domains) PDF Prenta Senda
Uppsetning og umsýsla léna

Addon domain er notað til að búa til sjálfstæða vefi með sér eigið lén en undir einni vefhýsingu. Þetta gera menn til að spara sér að kaupa margar hýsingar fyrir vefina sína eða af því það hentar að sýsla með alla vefina undir einum hatti þ.e. einu stjórnborði. Til að fá meiri aðskilnað í umsýslu mismunandi heimasíðna er einfaldast að kaupa tvær vefhýsingar.

meira...
 
Varist að breyta endingum php skráa. PDF Prenta Senda
PHP öryggi

Það er mjög algengt hjá forriturum að afrita skrár undir annað nafn til að eiga upphaflegu útgáfuna af henni ef ske kynni að breytingar misheppnist auk fleiri ástæðna. Stundum eru menn einnig að sækja nýjar útgáfur og vilja prófa áður en þeir henda eldri útgáfunni. Ein af þeim endingum sem er mjög vinsælt að einfaldlega bæta við skrána er .bak

Þetta er eins og opið boðskort til tölvuþrjóta en það er útskýrt betur hér.

meira...
 
Kannið/síið innihald inn-breyta PDF Prenta Senda
PHP öryggi

Inn-breytu hóparnir (input variables) eru t.d. $_POST, $_GET og $_REQUIRE. Það er mikilvægt að sleppa ekki hverju sem er í gegn þegar tekið er á móti upplýsingum í gegn um þessar breytur. Auðvelt er að yfirsjást mögulegar innspýtingar árásir (injection exploits) þarna í gegn. Af þeim sökum er besta stefnan að samþykkja aðeins rétt formaðar upplýsingar frá inn-breytum og útiloka allt annað undantekningalaust.

meira...
 
Vertu skipstjóri eigin skútu PDF Prenta Senda
Leiðbeiningar

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að verða alvöru lénsherrar með því að ráða yfir lénunum sínum. Sérstaklega á þetta við um innlendu .is lénin. Þeir sem láta yfirráð léns frá sér með því að kaupa pakka þar sem lénið er innifalið eru í raun undir hælnum á viðkomandi aðila með ímynd sína á veraldarvefnum svo ekki sé talað um möguleika á okri af ýmsu tagi. Taktu því lénin þín föstum tökum og gangtu úr skugga um að þú sért löglegur rétthafi þeirra og fáðu þitt netfang skráð í rétthafaskrá isnic.

 
Prufu / sýndarpöntun PDF Prenta Senda
Leiðbeiningar

Við bjóðum þeim sem vilja skoða pöntunarferlið án ábyrgðar að gera þykjustunni pantanir. Í pöntunarferlinu er möguleiki á að haka við að verið sé að prófa. Þannig pantanir eru einfaldlega ekki afgreiddar með uppsetningu vefsvæðis en þú færð samt kost á að sjá hvernig ferlið gengur fyrir sig. Þó þarf að setja inn netfang til að sjá staðfestingapósta og slíkt.

 
Stjórnborðið cPanel PDF Prenta Senda
Leiðbeiningar

Stjórnborð vefhýsingarinnar heitir cPanel en slóðin að cPanel er www.vefir.net/cpanel . Vinsamlegast athugaðu að slóðin sem hér er nefnd er til einföldunar svo auðveldara sé að muna hana. Hin eiginlega slóð er https://vps.vefhysing.com:2083 en stutta útgáfan breytist í þessa lengri við tengingu.

meira...
 
FTP uppsetning PDF Prenta Senda
Leiðbeiningar

Flestir vefhýsendur eru að nota ftp til að sýsla með skrár á vefsvæði sínu. Sumir nota Dreamweaver við vefsíðugerðina en það kerfi notar ftp til samskipta við vefsvæðið.

Uppsetning FTP aðgangs í vefhýsingunni
Það er góð regla að nota sérstakt notendanafn fyrir ftp samskiptin og forðast að nota aðal-notendanafn hýsingarinnar í þessum tilgangi. Opnið stjórnborðið (cpanel) til að stilla upp ftp aðgangi.

meira...
 
Uppsetning á POP3 aðgangi PDF Prenta Senda
Tölvupóstur

 

Í stuttu máli fyrir fagmenn: 

Outgoing mail (SMTP) og Incoming mail (POP3) hafa bæði slóðina mail.vefir.net. Ef sækja á póst með dulkóðaðri tengingu (secure connection port 995) er sett vps.vefhysing.com í Incoming slóðina. Að sjálfsögðu má nota "local" póstþjón fyrir SMTP svo sem eins og mail.simnet.is hjá Símanum og mail.internet.is hjá Vodafone.

 

Ítarlegri leiðbeiningar fyrir leikmenn (notast er við Outlook notendaviðmótið):

Outlook og Outlook Express eru líklega vinsælustu póstforritin nú á tímum. Í þessum leiðbeiningum er gert ráð fyrir að netfangið hafi þegar verið sett upp í vefhýsingunni. Nýja póstforritið frá Microsoft er svo Microsoft Mail en það kemur með Vista stýrikerfinu. Það er mjög svipað í uppsetningu og frændur þess Outlook og Outlook Express. POP3 aðgangur að tölvupósti sækir póstinn í pósthólfið með öllum viðhengjum og texta og hreinsar svo póstinn af póstþjóninum (reyndar er því stýrt með stillingum en sjálfgefna leiðin er að sækja póstinn og eyða honum svo af póstþjóninum).

meira...
 
GMail notað fyrir póstinn PDF Prenta Senda
Tölvupóstur

Þú getur nýtt GMail sem tölvupóstviðmót og sótt og sent tölvupóst þaðan í nafni þíns eigin léns. Þetta er einfalt í uppsetningu og þarfnast engrar sérstakrar tæknikunnáttu. Hér eru leiðbeiningar:

meira...
 
Öryggi póstgagna PDF Prenta Senda
Tölvupóstur

Töluvert er um það hjá viðskiptavinum að þeir geymi póstinn sinn hjá okkur varanlega jafvel þó þeir sæki póstinn með Outlook eða öðrum póstforritum. Það felst mikið öryggi í að eiga póstinn á tveimur stöðum og aðgengilegan hvaðan sem er í heiminum því sem næst. Í Outlook er netfangið stillt með valmöguleikanum "Leave mail on server" til að fá fram þessa virkni.

meira...
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 16 af 30
 BETRI VERÐ: Við bjóðum betri verð á vefhýsingu. Sjá samanburðartöflu og verðdæmi.
Lesa meira...
 MEIRA INNIFALIÐ: Meira pláss fyrir gögnin, engin takmörg á fjölda netfanga, léna, póstlista, MySQL gagnagrunna og óendanlegir stækkunarmöguleikar.
Lesa meira...
 ÁNÆGÐARI VIÐSKIPTAVINIR: Ég er búinn að vera í tölvubransanum í 10 ár og átt viðskipti við marga hýsingaraðila bæði hérlendis og erlendis...
Lesa meira...
 MEIRA ÖRYGGI: Vefþjónarnir okkar eru vaktaðir 24 tíma sólahrings, allan ársins hring. Við fylgjumst með og uppfærum eldveggi...
Lesa meira...
 SKÝRIR SKILMÁLAR: Skilmálarnir eru einfaldir, komast fyrir á einni blaðsíðu og vefjast ekki fyrir neinum. Lesa meira...
 BETRI ÞJÓNUSTA: Símavaktin er opin virka daga frá 9:30-17:00, en utan þess tíma er tölvupóstur skipulega vaktaður.
Lesa meira...
 
Aðeins 1.245 kr. / mán
Lesa meira...

 
Aðeins 1.868 kr. / mán
Lesa meira...

 
Aðeins 3.735 kr. / mán
Lesa meira...

 
Aðeins 8.591 kr. / mán
Lesa meira...