Til að spara þér tíma og orku er best að gera þetta í réttri röð. Taktu eftirfarandi 4 skref til að koma upp eigin vefsíðu.
1. Er lénið laust til umsóknar? Ef þú hefur ekki fest þér óska lénið ennþá er ráðlegast að byrja á að athuga hvort það sé laust. Ef um er að ræða íslenskt lén (.is) er best að leita hjá isnic.is en við erum einnig með leitarsíðu þar sem hægt er að leita undir mörgum endingum í einu (.com, .net, .info ofl.).
2. Áður en þú sækir um lénið þarftu að hafa vefhýsinguna klára. Hjá okkur sækirðu um eitt af eftirfarandi: Grunn-, Bronz-, Silfur- eða Gull-hýsingu (sjá samanburð hér) og lætur okkur vita um leið hvaða lén þú hefur í huga. Greiða þarf staðfestingu þ.e.a.s. fyrsta mánuðinn til að við setjum vefhýsinguna upp. Þegar svar hefur borist frá okkur um að vefhýsingin sé klár sækirðu um lénið eða lætur okkur sækja um það fyrir þig gegn þóknun.
3. Nú sækirðu um lénið eða flytur það ef það var þegar í þinni eigu. Við umsóknina þarftu að gefa upp nafnaþjóna okkar en þeir eru ns1.vefhysing.com og ns2.vefhysing.com. Það getur tekið allt að 48 klst. fyrir lénið að smitast um internetið en þú getur hafið vinnu við heimasíðuna strax.
4. Næsta skref er að setja heimasíðuna upp. Þér stendur ýmislegt til boða í þeim efnum. Sumir kjósa að setja hana upp með Front Page en þá þarftu að kveikja á Front Page extensions í cpanel. Sumir kjósa að forrita heimasíðuna algjörlega sjálfir og nota tól eins og Dreamweaver við þann verknað. Sumir nota svo svokölluð vefstýrikerfi (CMS = content management system) eins og t.d. Mambo. Það er til töluvert úrval af slíkum kerfum og þar af nokkur íslensk. Við höfum kosið að styðja fyrst og fremst við Mambo og Joomla þar sem þessi kerfi eru frí og smíðuð eftir opnum stöðlum. Þessi vefur sem þú ert að skoða er gott dæmi um Joomla/Mambo vef og hér er annað dæmi: Íkon Joomla vefur
BETRI VERÐ:Við bjóðum betri verð á vefhýsingu. Sjá samanburðartöflu og verðdæmi. Lesa meira...
MEIRA INNIFALIÐ:Meira pláss fyrir gögnin, engin takmörg á fjölda netfanga, léna, póstlista, MySQL gagnagrunna og óendanlegir stækkunarmöguleikar. Lesa meira...
ÁNÆGÐARI VIÐSKIPTAVINIR: Ég er búinn að vera í tölvubransanum í 10 ár og átt viðskipti við marga hýsingaraðila bæði hérlendis og erlendis... Lesa meira...
MEIRA ÖRYGGI: Vefþjónarnir okkar eru vaktaðir 24 tíma sólahrings, allan ársins hring. Við fylgjumst með og uppfærum eldveggi... Lesa meira...
SKÝRIR SKILMÁLAR: Skilmálarnir eru einfaldir, komast fyrir á einni blaðsíðu og vefjast ekki fyrir neinum. Lesa meira...
BETRI ÞJÓNUSTA: Símavaktin er opin virka daga frá 9:30-17:00, en utan þess tíma er tölvupóstur skipulega vaktaður. Lesa meira...