Fyrir miðjan mars 2008 settum við upp nýja gerð eldveggja fyrir megin vefþjóninn okkar. Nýji eldveggurinn lokar aðgangi tölvuþrjóta sjálfkrafa eftir ákveðnum vísbendingum sem þrjótarnir gefa sjálfir með tilraunum sínum. Án eldveggjarins eru kerfin okkar eftir sem áður örugg fyrir, því við höfum lært að treysta varnirnar með árunum og sjá við árásum. Eldveggurinn gefur okkur aukavörn gegn nokkrum tegundum árása sem tölvuþrjótar eru að reyna meir og meir. Lokað er á IP tölur viðkomandi árásaraðila þannig að frá þeirra sjónarhól er eins og vefþjónninn sé ekki lengur til þ.e. hann verður ósýnilegur gagnvart viðkomandi í vissan tíma en það nægir oftast til að fá þá til að missa áhugann.
Tekist hefur að hrynda öllum árásum tölvuþrjóta hingað til. Þeir
reyna að finna glufur í kerfum sem viðskiptavinir hafa sett upp á
vefsvæðum sínum. Til allrar hamingju eru PHP kerfin orðin betri núorðið
og hefur öllum árásum nú verið hrundið.
Vinsamlegast athugið að engir vefhýsingaraðilar eru undanskildir
árásum af þessu tagi. Allir eru jafnir á internetinu hvað það varðar.
Við erum því ekki valdir sérstaklega úr eða eitthvað slíkt og vefir
geta orðið fyrir árásum sama hjá hverjum þeir eru vistaðir. Við höfum
nú slökkt á
allow_url_fopen í PHP á meðan kerfi eru skoðuð og uppfærð. Vinsamlegast
hafðu samband við okkur sem fyrst ef þú telur þetta hafa hindrað
einhverja virkni á þínu vefsvæði.
BETRI VERÐ:Við bjóðum betri verð á vefhýsingu. Sjá samanburðartöflu og verðdæmi. Lesa meira...
MEIRA INNIFALIÐ:Meira pláss fyrir gögnin, engin takmörg á fjölda netfanga, léna, póstlista, MySQL gagnagrunna og óendanlegir stækkunarmöguleikar. Lesa meira...
ÁNÆGÐARI VIÐSKIPTAVINIR: Ég er búinn að vera í tölvubransanum í 10 ár og átt viðskipti við marga hýsingaraðila bæði hérlendis og erlendis... Lesa meira...
MEIRA ÖRYGGI: Vefþjónarnir okkar eru vaktaðir 24 tíma sólahrings, allan ársins hring. Við fylgjumst með og uppfærum eldveggi... Lesa meira...
SKÝRIR SKILMÁLAR: Skilmálarnir eru einfaldir, komast fyrir á einni blaðsíðu og vefjast ekki fyrir neinum. Lesa meira...
BETRI ÞJÓNUSTA: Símavaktin er opin virka daga frá 9:30-17:00, en utan þess tíma er tölvupóstur skipulega vaktaður. Lesa meira...