Forsíða Fréttir Ný sveigjanleg skapalón fyrir viðskiptavini vefhýsingar
Ný sveigjanleg skapalón fyrir viðskiptavini vefhýsingar

EDAL.net býður nú upp á ný sveigjanleg skapalón

Skapalón = Template

Smelltu á myndina til að skoða skapalónin okkar. Þau eru hönnuð með það að leiðarljósi að gefa kost á hámarks sveigjanleika við hönnun vefsíðna.

Skapalón er okkar þýðing á orðinu Template. Þetta eru aðeins dæmi því hægt er að breyta flestum þáttum hvers skapalóns svo sem eins og bakgrunnslit ofl.

Úr skapalónunum er því hægt að framkalla óteljandi mismunandi uppstillingar.

Í vefumsjónarkerfum eins og Joomla er almenna reglan að útlit og innihald vefsíðna eru aðskilin. Það er því oftast hægt að skipta um útlit án þess að endurvinna innihaldið.