| Áður en reikningsyfirlit eru send út hafa viðskiptavinir í flestum tilfellum fengið rafrænan greiðsluseðil inn á heimabankann sinn. Vinsamlegast greiðið eftirstöðvar með greiðsluseðlinum. Að svo stöddu erum við ekki komnir með sérstakt innsláttarform fyrir greiðslukort á nýja vefsvæðinu en vanda verður sérstaklega til verksins öryggisins vegna. Vinsamlegast ath. að vanskil eru send Premium Kredit til innheimtu. 
| Greiða má hýsingargjöldin beint inn á bankareikning  			okkar:1110-26-1819 kt. 510288-1819 (Íkon ehf.)
 eða
 nota greiðslukort: Öruggt  			innsláttarform fyrir greiðslukortaupplýsingar
 
 eða
     Ef þú dvelur erlendis og þarft að láta þarlendan  			banka senda greiðsluna þá ættu eftirfarandi upplýsingar að hjálpa:SWIFT : BUISISRE (Swift kóði KB Banka)
 IBAN: IS48 0303 2601 6963 5102 8818 19 (IBAN númer bankareiknings Íkon  			ehf.)
 Vefsíða KB Banka (ef þörf  			er á heimilisfangi eða öðrum upplýsingum en við erum hjá  			Austurbæjar útibúi 0303)
 |  
| GREIÐSLUSKILMÁLAR
 Staðfesting
 Til að staðfesta pöntun á vefhýsingu skal greiða því sem nemur einum mánuði eða meira inn á ofangreindan bankareikning. Viðskiptavinir  			fá sendan reikning um hæl fyrir hýsingargjöldum sem nema því  			sem eftir er af yfirstandandi hýsingartímabili eða reikningur berst með eftirstöðvum hýsingartímabils auk næsta tímabils. Greiða þarf þann  			reikning innan þess mánaðar sem hann er dagsettur.
 GreiðslutímabilViðskiptavinir sem greiða beint inn á bankareikning fá reikning á  			þriggja mánaða fresti og greiða fyrir 3 mánuði í senn.  			Tímabilin eru 1. janúar - mars, 2. apríl - júní, 3. júlí - september og 4. október  			- desember. Vefhýsingin skal ávallt greiðast  			fyrirfram fyrir hvert tímabil. Hafi greiðsla ekki borist fyrir 10. dag hýsingartímabils  			getur eigandi vefsins reiknað með lokun hans án frekari fyrirvara. Berist pöntun  			á höfnu tímabili greiðir viðskiptavinurinn staðfestingu eins og  			að ofan greinir og síðan eftirstöðvar fyrir hafið tímabil þegar  			reikningur berst, ef einhverjar eru.
 BoðgreiðslurViðskiptavinir sem greiða með boðgreiðslum Visa eða Euro eru skuldfærðir  			mánaðarlega. Gefnir eru út reikningar á þriggja mánaða, sex eða tólf mánaða tímabil eftir tilefni og/eða óskum korthafa. Ef viðskiptavinurinn  			afpantar hýsingu eru eftirstöðvar ársins kreditfærðar og boðgreiðslur  			stöðvaðar.
 Vinsamlegast ath. að vanskil eru send Premium Kredit til innheimtu. Nánar um skilmála hýsingar |  |