| 
Með því að panta hýsingu hjá EDAL.NET gengurðu 
sjálfkrafa að eftirfarandi skilmálum:
 
Þessi samningur er á milli edal.net, hér eftir nefndur "þjónustuaðili" 
og þín, hér eftir nefndur "notandi".
 
 
A. FRÍUN ÁBYRGÐAR VARÐANDI VEF NOTANDA OG SKILGREINING Á SAMBANDI 
SAMNINGSAÐILA
 
	Notandi lofar að halda þjónustuaðila óábyrgum gagnvart 
	lögsóknum eða kostnaði, þ.á.m. eigin málskostnaði 
	og kostnaði við vörn vegna mála er upp kunna að koma vegna vefsvæðis 
	hans og innihald þess.Ekkert í þessum samningi skal skilið þannig að þjónustuaðili 
	sé samstarfsaðili, útgefandi eða í ritstjórn varðandi 
	innihald vefsvæðis notanda. Báðir aðilar viðurkenna og samþykkja 
	að þjónustuaðili beri enga ábyrgð á innihaldi vefsvæðis 
	notanda. Eina meðhöndlun þjónustuaðila á vef notanda er tæknilegs 
	eðlis.Notandi lofar að halda þjónustuaðila óábyrgum gagnvart 
	lögsóknum eða kostnaði varðandi lénanöfn (domain names) 
	sem hann notar.  
B. GREIÐSLA FYRIR ÞJÓNUSTU OG INNIHALD
 
	Notandi samþykkir að greiða þau gjöld sem sett voru fram við 
	skráningu vefhýsingar hans. Áskrift fyrir vefhýsingu skulu greidd 
	fyrirfram fyrir 3 mánuði í senn nema um annað sé samið en gjöld 
	fyrir aðra þjónustu má greiða eftir á samkvæmt nánara 
	samkomulagi.Notandi samþykkir að hafi greiðsla ekki borist innan 15 daga frá dagsetningu 
	reiknings eða fyrir 10. dag hafins hýsingartímabils eftir því 
	sem við á hverju sinni megi þjónustuaðili loka fyrir þjónustuna 
	án frekari fyrirvara þar til reikningar hafa verið gerðir upp. Að öðru 
	leyti gilda landslög og venjur um innheimtu skulda, þ.m.t. varðandi innheimtukostnað 
	og dráttarvexti.Engin önnur þjónusta eða aðstoð er innifalin í mánaðarlegum 
	gjöldum fyrir vefhýsingu. Gert er ráð fyrir að notandi hafi eða 
	afli sér þeirrar þekkingar sem þarf til að stýra sínu 
	vefsvæði og leiti hann aðstoðar þjónustuaðila fellur sú 
	aðstoð undir gjaldskrá þjónustuaðila.  
C. HÖFNUN Á ÞJÓNUSTU
 
	Þjónustuaðili áskilur sér rétt til að hafna eða 
	loka fyrir þjónustu án fyrirvara telji hann notanda hafa brotið gegn skilmálum 
	þessum. Notandi hefur í því tilfelli enga kröfu á endurgreiðslu 
	fyrir greidda þjónustu. 
 
D. INNIHALD
 
	Þjónustuaðili heldur í heiðri tjáningarfrelsinu. Vefsvæðið 
	fær að halda sér óáreitt svo framarlega sem innihald þess 
	brýtur ekki í bága við landslög svo sem eins og varðandi barnaklám, 
	höfundarrétt eða ærumeiðingar (sjá lög nr. 30/2002 14. 
	gr.). Vitneskja/grunur um að barnaklám sé vistað á vefsvæði 
	mun leiða til umsvifalausrar lokunar á vefsvæðinu og tilkynningar til lögmætra 
	yfirvalda.Notandi er ábyrgur fyrir öllu innihaldi vefsvæða sinna og flutningi 
	gagna til eða frá þeim. 
E. NOTKUN ÞJÓNUSTUNNAR
 
	Notandi lofar að viðhafa almenna kurteisi við notkun vefsvæðis síns 
	og forðast að nota dreifingarlista og rafrænan póst eða aðra tækni 
	fyrir magndreifingu auglýsinga án samþykkis viðtakenda. Þetta 
	er almennt kallað ruslpóstur eða spam á máli internetsins.Notandi lofar að viðhalda réttu netfangi sínu og símanúmeri 
	hjá þjónustuaðila svo hafa megi samband við hann varðandi þjónustuna 
	eða gjöld eða annað.Notandi samþykkir að verða við óskum þjónustuaðila 
	varðandi beitingu tóla er kunna að trufla þjónustu til annarra notenda. 
F. SKILMÁLAR SAMNINGS OG SAMNINGSSLIT
 
	Þessi samningur gildir upphaflega í minnst einn mánuð en framlengist síðan 
	sjálfkrafa um einn mánuð í senn eða þar til annarhvor aðili 
	segir honum upp. Uppsögn má fara fram með tölvupósti frá netfangi 
	sem sannanlega er í eigu viðkomandi. Komi til uppsögn fyrir tímabil sem 
	notandi hefur greitt fyrir á hann rétt á endurgreiðslu hafi hann ekki 
	brotið á þjónustuaðila eða skilmálum þessa samnings. 
	Uppsögn skal berast minnst 7 dögum fyrir mánaðarmót ella áskilur 
	þjónustuaðili sér rétt til að rukka fullt áskriftargjald 
	fyrir komandi mánuð. 
 
G. ÖRYGGI
 
	Notandi samþykkir að reyna ekki að grafa undan eða skaða vefþjóna, 
	netþjóna, viðskiptavini eða hagsmuni þjónustuaðila. Slíkt 
	mun leiða til lokunar á þjónustu án fyrirvara og lögsóknar 
	ef tilefnið telst alvarlegt og vísvitandi. 
 
H. UMFANG SAMNINGS
 
	 Samning þennan skal halda í heiðri gagnvart öllum undirlénum 
	notanda, þjónustuaðila og vefþjónum þjónustuaðila.Þjónustuaðili áskilur sér rétt til að breyta og 
	bæta við skilmála þessa samnings án frekari fyrirvara. 
        Ég hef lesið skilmálana og samþykki þá án fyrirvara 
 |