1.432 kr. / mán

  • Góð byrjun
  • 150 MB rými
  • Ótakmörkuð netföng og lén
  • Ruslpóstvarnir (SPAM)
  • Mambo/Joomla stuðn.
  • FTP og Cpanel aðg.
  • PHP, Perl, mySQL, Postgres o.fl.
Lesa meira...
 

2.148 kr. / mán

  • Fyrir fyrirtækið / félagið
  • 300 MB rými
  • Ótakmörkuð netföng og lén
  • Ruslpóstvarnir (SPAM)
  • Mambo/Joomla stuðn.
  • FTP og Cpanel aðg.
  • PHP, Perl, mySQL, Postgres o.fl.
Lesa meira...
 

3.922 kr. / mán

  • Fyrir vefmeistarana
  • 4.000 MB rými (4GB)
  • Ótakmörkuð netföng og lén
  • Ruslpóstvarnir (SPAM)
  • Mambo/Joomla stuðn.
  • SSH, FTP og Cpanel aðg.
  • PHP, Perl, mySQL, Postgres o.fl.
Lesa meira...
 

11.081 kr. / mán

  • EIGIN VEFÞJÓNN
  • Fyrir stóru verkefnin
  • 15.000 MB rými (15GB)
  • Rótaraðgangur (SSH)
  • Web Host Manager
  • 4 IP addressur og eigin DNS þjónn
  • 24/7 x 365 tækniaðstoð
Lesa meira...
Forsíða
Stýrikerfi vefþjóns uppfært

Á miðnætti (kl. 24:00) á þriðjudaginn eða réttara sagt kl. 00:00 á miðvikudaginn 3. des. verður stýrikerfi megin vefþjóns okkar uppfært. Áætlað er að verkið taki allt að 2,5 klst. en líklega tekur þetta styttri tíma ef marka má reynsluna af þessum uppfærslum.

Ekki er reiknað með að vefþjónninn verði "viðræðuhæfur" á meðan á þessu stendur. Lénsherrum hefur verið send tilkynning um þennan viðburð með tölvupósti.

meira...
 
Nýjungar í stjórnborðinu (cPanel)

Frá og með 19. sept. hefur stjórnborðið nýtt útlit og nokkrar afgerandi breytingar og viðbætur.

Á meðal nýjunga:

  • Vefdiskur: Notendur geta nú stofnað sérstaka möppu á heimasvæðinu sem er aðgengileg beint af skjáborði tölvunnar. Nota má draga og sleppa (drag and drop) til að færa skjöl á milli eða eyða þeim. Halað er niður litlu forriti sem bætir þessum kosti við stýrikerfi einkatölvunnar. Virkar fyrir Windows, Macintosh og Linux stýrikerfi. Frábær leið til að eiga öruggt afrit af fjölskyldumyndunum og/eða öðrum mikilvægum gögnum. Velja má um hvort gögnin séu aðgengileg öllum með vafra á veraldarvefnum eða aðeins aðgengileg með aðgangslykli.
  • Video kennsla: Notendur hafa nú aðgang að hreyfimyndum sem sýna hvernig á að framkvæma tilteknar aðgerðir innan stjórnborðsins.
  • Round Cube: Notendur vefpósts hafa nú um nokkurt skeyð haft aðgang að nýju vefviðmóti fyrir tölvupóstinn. Round Cube er mjög hreint og einfallt viðmót en jafnframt hraðvirkt. Eins og í Squirrel Mail má stilla viðmótið á íslensku og reyndar fjölda annarra tungumála.
  • Nýr File Manager: Skráaumsýsla hefur verið stórbætt með nýju tóli. Við höfum áfram aðgang að gamla tólinu en það nýja er bara mun betra, gefur betri yfirsýn, er hraðvirkara og skartar draga sleppa (á milli mappa) ásamt fleiri kostum sem við leyfum notendum að uppgötva sjálfum.
  • Gert klárt (Getting Started): Notendur hafa nú aðgang að byrjendakynningu á vefhýsingunni.
meira...
 
Vertu skipstjóri eigin skútu

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að verða alvöru lénsherrar með því að ráða yfir lénunum sínum. Sérstaklega á þetta við um innlendu .is lénin. Þeir sem láta yfirráð léns frá sér með því að kaupa pakka þar sem lénið er innifalið eru í raun undir hælnum á viðkomandi aðila með ímynd sína á veraldarvefnum svo ekki sé talað um möguleika á okri af ýmsu tagi. Taktu því lénin þín föstum tökum og gangtu úr skugga um að þú sért löglegur rétthafi þeirra og fáðu þitt netfang skráð í rétthafaskrá isnic.

 
4 skref í lénsherra

Til að spara þér tíma og orku er best að gera þetta í réttri röð. Taktu eftirfarandi 4 skref til að koma upp eigin vefsíðu.

meira...
 
Uppsetning viðbótarléna (Addon domains)

Addon domain er notað til að búa til sjálfstæða vefi með sér eigið lén en undir einni vefhýsingu. Þetta gera menn til að spara sér að kaupa margar hýsingar fyrir vefina sína eða af því það hentar að sýsla með alla vefina undir einum hatti þ.e. einu stjórnborði. Til að fá meiri aðskilnað í umsýslu mismunandi heimasíðna er einfaldast að kaupa tvær vefhýsingar.

meira...
 
Uppsetning léna með stjórnborðinu (cPanel)

Til eru tvær megin leiðir við uppsetningu léna á vefsvæðum. Önnur heitir Parked Domains og hin heitir Addon Domains. Parked domain er lén sem er lagt ofan á annað lén og vísar í raun á sömu vefsíðu/heimasíðu. Hjá okkur eru enging takmörk fyrir því hversu mörg lén geta vísað á sömu vefsíðu.

meira...
 
Prufu / sýndarpöntun

Við bjóðum þeim sem vilja skoða pöntunarferlið án ábyrgðar að gera þykjustunni pantanir. Í pöntunarferlinu er möguleiki á að haka við að verið sé að prófa. Þannig pantanir eru einfaldlega ekki afgreiddar með uppsetningu vefsvæðis en þú færð samt kost á að sjá hvernig ferlið gengur fyrir sig. Þó þarf að setja inn netfang til að sjá staðfestingapósta og slíkt.

 
Öryggismálin í brennidepli

Fyrir miðjan mars 2008 settum við upp nýja gerð eldveggja fyrir megin vefþjóninn okkar. Nýji eldveggurinn lokar aðgangi tölvuþrjóta sjálfkrafa eftir ákveðnum vísbendingum sem þrjótarnir gefa sjálfir með tilraunum sínum. Án eldveggjarins eru kerfin okkar eftir sem áður örugg fyrir, því við höfum lært að treysta varnirnar með árunum og sjá við árásum. Eldveggurinn gefur okkur aukavörn gegn nokkrum tegundum árása sem tölvuþrjótar eru að reyna meir og meir. Lokað er á IP tölur viðkomandi árásaraðila þannig að frá þeirra sjónarhól er eins og vefþjónninn sé ekki lengur til þ.e. hann verður ósýnilegur gagnvart viðkomandi í vissan tíma en það nægir oftast til að fá þá til að missa áhugann.

meira...
 
Meira pláss - sama verð

Þeir sem hafa hjá okkur heila vefþjóna fá nú þegar 50% meira pláss en fyrir áramót á óbreyttu verði. 10GB vélarnar stækka í 15GB, 20GB vélarnar stækka í 30GB. Viðskiptavinir í vefhýsingu fá einnig stækkun í febrúar 2008 þ.e. grunn hýsing fær 150MB og Bronz fær 300MB. Að svo stöddu stækkum við ekki Silfrið en gefum þeim þess í stað ssh aðgang ef þeir óska þess.

 
Ruslpóstur drepinn

Bæði orðin í fyrirsögninni tengjast hryllingi í huga okkar flestra í nánast öllu öðru samhengi. En þegar þau standa saman eru þau fagnaðarefni jafnvel grandvörustu einstaklingum. 

meira...
 
Hvers vegna Joomla / Mambo ?

Vefumsjónarkerfi verða æ vinsælli hjá lénsherrum internetsins. Þau auðvelda mjög innsetningu/uppfærslu á efni og ekki þarf sérþekkingu í vefsíðugerð til að nota þau. Við höfum nú notað sjálfir og sett upp fyrir viðskiptavini Joomla og Mambo vefumsjónarkerfi í nokkur ár. Áreiðanleiki og sveigjanleiki þessarar kerfa færir þau höfuð og herðar yfir flest önnur kerfi í gæðum.

meira...
 
GMail notað fyrir póstinn

Þú getur nýtt GMail sem tölvupóstviðmót og sótt og sent tölvupóst þaðan í nafni þíns eigin léns. Þetta er einfalt í uppsetningu og þarfnast engrar sérstakrar tæknikunnáttu. Hér eru leiðbeiningar:

meira...
 
Kaupsýslumaður segir sitt álit

"Ég ákvað að gefa mér smá  tíma til að hæla strákunum og auðvitað stelpunum líka þarna á edal.net. Ég hef verið í viðskiptum við edal.net í nokkur ár."

meira...
 
Afl megin vefþjóns aukið

Megin vefþjónn okkar hefur verið tvöfaldaður að stærð til að stytta svartíma og svara auknu álagi. Við fylgjumst með álagi á vefsíður viðskiptavina til að gæta þess að svartími vefsíðna sé eins lágur og mögulegt er. Okkur er annt um orðspor okkar hvað það varðar.

meira...
 
Öryggi póstgagna

Töluvert er um það hjá viðskiptavinum að þeir geymi póstinn sinn hjá okkur varanlega jafvel þó þeir sæki póstinn með Outlook eða öðrum póstforritum. Það felst mikið öryggi í að eiga póstinn á tveimur stöðum og aðgengilegan hvaðan sem er í heiminum því sem næst. Í Outlook er netfangið stillt með valmöguleikanum "Leave mail on server" til að fá fram þessa virkni.

meira...
 
Nýtt vefumsjónarkerfi frá Joomla

Útgáfa RC1 (Release Candidate 1) af Joomla 1,5 kom út fyrur nokkru síðan. Notendur um allan heim eru að prófa nýja kerfið og þar á meðal við. Vefumsjónarhlutinn er mjög flottur en hefur jafnframt verið einfaldaður að mörgu leiti. Þær breytingar sem við höfum séð eru mjög til bóta. Eitt af markmiðum hönnuðanna var svokallað "backward compatibility" gagnvart skapalónum og viðbótum.

meira...
 
Íslenskir sérstafir í nafni léns

Hafir þú áhuga á að bæta við léni með sérstöfum er ekkert því til fyrirstöðu lengur. Isnic er með sérstakt tilboð til þeirra sem eiga lén sem passa við samsvarandi lén með sérstöfum. Ath. að hugbúnaður gesta þarf að umrita nafn lénsins þannig að ekki er sjálfgefið að hægt sé að slá þessi lén inn hvar sem er. Dæmi: http://www.íkon.is umritast sem xn--kon-qma.is.

meira...
 

MEÐAL VIÐSKIPTAVINA 


  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga
  • Verkefnasaga

 BETRI VERÐ: Við bjóðum betri verð á vefhýsingu. Sjá samanburðartöflu og verðdæmi.
Lesa meira...
 MEIRA INNIFALIÐ: Meira pláss fyrir gögnin, engin takmörg á fjölda netfanga, léna, póstlista, MySQL gagnagrunna og óendanlegir stækkunarmöguleikar.
Lesa meira...
 ÁNÆGÐARI VIÐSKIPTAVINIR: Ég er búinn að vera í tölvubransanum í 10 ár og átt viðskipti við marga hýsingaraðila bæði hérlendis og erlendis...
Lesa meira...
 MEIRA ÖRYGGI: Vefþjónarnir okkar eru vaktaðir 24 tíma sólahrings, allan ársins hring. Við fylgjumst með og uppfærum eldveggi...
Lesa meira...
 SKÝRIR SKILMÁLAR: Skilmálarnir eru einfaldir, komast fyrir á einni blaðsíðu og vefjast ekki fyrir neinum. Lesa meira...
 BETRI ÞJÓNUSTA: Símavaktin er opin virka daga frá 9:30-17:00, en utan þess tíma er tölvupóstur skipulega vaktaður.
Lesa meira...

Fréttaveita

Fréttaveita

Add to Google Reader or Homepage

Powered by FeedBurner