1.432 kr. / mán

  • Góð byrjun
  • 150 MB rými
  • Ótakmörkuð netföng og lén
  • Ruslpóstvarnir (SPAM)
  • Mambo/Joomla stuðn.
  • FTP og Cpanel aðg.
  • PHP, Perl, mySQL, Postgres o.fl.
Lesa meira...
 

2.148 kr. / mán

  • Fyrir fyrirtækið / félagið
  • 300 MB rými
  • Ótakmörkuð netföng og lén
  • Ruslpóstvarnir (SPAM)
  • Mambo/Joomla stuðn.
  • FTP og Cpanel aðg.
  • PHP, Perl, mySQL, Postgres o.fl.
Lesa meira...
 

3.922 kr. / mán

  • Fyrir vefmeistarana
  • 4.000 MB rými (4GB)
  • Ótakmörkuð netföng og lén
  • Ruslpóstvarnir (SPAM)
  • Mambo/Joomla stuðn.
  • SSH, FTP og Cpanel aðg.
  • PHP, Perl, mySQL, Postgres o.fl.
Lesa meira...
 

11.081 kr. / mán

  • EIGIN VEFÞJÓNN
  • Fyrir stóru verkefnin
  • 15.000 MB rými (15GB)
  • Rótaraðgangur (SSH)
  • Web Host Manager
  • 4 IP addressur og eigin DNS þjónn
  • 24/7 x 365 tækniaðstoð
Lesa meira...
Forsíða
Viltu laða inn fleiri heimsóknir á heimasíðunna?

Eðalnet / Íkon ehf og Google hafa stofnað til samstarfs um að kynna AdWords þjónustu Google með vefhýsingunni. Þeir sem kaupa vefshýsingu hjá okkur á þessu ári (2009) fá auglýsingainneign hjá Google upp á €50 (rétt innan við kr. 9.000 virði í maí 2009).

Núverandi viðskiptavinir geta einnig fengið inneignarnúmer af þessu tagi. Vinsamlegast sendið okkur póst og látið vita ef áhugi er fyrir hendi að notfæra sér þetta einstaka tilboð Google eða smellið einfaldlega hér til að panta slíka inneign strax.

Þetta er gott tækifæri til að kynnast AdWords með litlum tilkostnaði. Nánari upplýsingar má finna hér.

meira...
 
Aukin afköst

Í apríl voru allir vefþjónarnir okkar stækkaðir. Við höfum nú tvöfallt meira minni úr að spila þ.e. tryggt minni er nú t.d. 4GB á megin vefþjóninum og lánsminni 8GB.  Þetta kemur okkur fyrst og fremst til góða á álagstímum en þá er ólíklegra en áður að afköst taki dýfu. Á vefþjónum með PHP reynir mikið á toppana í afkastagetu vefþjónsins. Álagspunktarnir eru stuttir en háir. Það hefur satt best að segja sjaldan reynt á eftri mörkin hjá okkur en þegar það gerist er svo sannarlega gott að hafa smá auka afkastagetu.

 
Grétar Arndal Kristjónsson

Ég er 20 ára drengur sem hef samt sem áður tölvuverða reynslu í þessum bransa á ég síðu sem kallast www.dralli.com, það sem mér finnst það besta sem edal býður upp á er verðið miðað við mb rýmið sérstaklega ef litið er á Ísland þá hafa menn verið að okra þetta svolítið hér heima. Mér finnst alveg frábært hvað serverinn er stöðugur hef ekki fundið fyrir neinu laggi eða neinum óþægindum. ÁFRAM EDAL.NET!

Grétar Arndal Kristjónsson ánægður viðskiptavinur.

 
Hýsum Joomlís

Í janúar 2009 sóttust Joomlis eftir að hýsa vef sinn joomlis.net hjá okkur. Joomlis hefur fengist við þýðingar á Joomla vefumsjónarkerfinu yfir á íslensku. Hýsing vefsins er því okkar framlag til framgangs þessa frjálsa vefumsjónarkerfis sem viðskiptavinir okkar hafa svo miklar mætur á. Joomla er opinn og frjáls hugbúnaður (open source) og því lítum við einnig á þetta sem okkar framlag til alheimssamfélags um frjálsan hugbúnað (sjá meira um frjálsan hugbúnað og stafrænt frelsi hér)

 
Hýsum heimilin

Íkon ehf - edal.net hefur tekið að sér vefhýsingu www.heimilin.is, undirskriftasöfnun ætluð til verndar heimilum landsmanna í ólgusjó fjármagnskreppunnar.  Við hvetjum viðskiptavini okkar til að líta við á vefsíðunni og íhuga stuðning.

 
Stofngjald .is léna fellt niður

Frá og með 1. des. 2008 var stofngjald .is léna hjá Isnic fellt niður. Eftir sem áður þarf að greiða árgjaldið sem er kr. 7.918 m. vsk. Það þarf ekki að fjölyrða um að þetta er mikilvægt fyrir alla sem hafa hagsmuna að gæta og styrkir samkeppnisstöðu .is léna á markaði.

 
Nýjungar í stjórnborðinu (cPanel)

Frá og með 19. sept. hefur stjórnborðið nýtt útlit og nokkrar afgerandi breytingar og viðbætur.

Á meðal nýjunga:

  • Vefdiskur: Notendur geta nú stofnað sérstaka möppu á heimasvæðinu sem er aðgengileg beint af skjáborði tölvunnar. Nota má draga og sleppa (drag and drop) til að færa skjöl á milli eða eyða þeim. Halað er niður litlu forriti sem bætir þessum kosti við stýrikerfi einkatölvunnar. Virkar fyrir Windows, Macintosh og Linux stýrikerfi. Frábær leið til að eiga öruggt afrit af fjölskyldumyndunum og/eða öðrum mikilvægum gögnum. Velja má um hvort gögnin séu aðgengileg öllum með vafra á veraldarvefnum eða aðeins aðgengileg með aðgangslykli.
  • Video kennsla: Notendur hafa nú aðgang að hreyfimyndum sem sýna hvernig á að framkvæma tilteknar aðgerðir innan stjórnborðsins.
  • Round Cube: Notendur vefpósts hafa nú um nokkurt skeyð haft aðgang að nýju vefviðmóti fyrir tölvupóstinn. Round Cube er mjög hreint og einfallt viðmót en jafnframt hraðvirkt. Eins og í Squirrel Mail má stilla viðmótið á íslensku og reyndar fjölda annarra tungumála.
  • Nýr File Manager: Skráaumsýsla hefur verið stórbætt með nýju tóli. Við höfum áfram aðgang að gamla tólinu en það nýja er bara mun betra, gefur betri yfirsýn, er hraðvirkara og skartar draga sleppa (á milli mappa) ásamt fleiri kostum sem við leyfum notendum að uppgötva sjálfum.
  • Gert klárt (Getting Started): Notendur hafa nú aðgang að byrjendakynningu á vefhýsingunni.
meira...
 
Vertu skipstjóri eigin skútu

Við hvetjum viðskiptavini okkar til að verða alvöru lénsherrar með því að ráða yfir lénunum sínum. Sérstaklega á þetta við um innlendu .is lénin. Þeir sem láta yfirráð léns frá sér með því að kaupa pakka þar sem lénið er innifalið eru í raun undir hælnum á viðkomandi aðila með ímynd sína á veraldarvefnum svo ekki sé talað um möguleika á okri af ýmsu tagi. Taktu því lénin þín föstum tökum og gangtu úr skugga um að þú sért löglegur rétthafi þeirra og fáðu þitt netfang skráð í rétthafaskrá isnic.

 
4 skref í lénsherra

Til að spara þér tíma og orku er best að gera þetta í réttri röð. Taktu eftirfarandi 4 skref til að koma upp eigin vefsíðu.

meira...
 
Uppsetning viðbótarléna (Addon domains)

Addon domain er notað til að búa til sjálfstæða vefi með sér eigið lén en undir einni vefhýsingu. Þetta gera menn til að spara sér að kaupa margar hýsingar fyrir vefina sína eða af því það hentar að sýsla með alla vefina undir einum hatti þ.e. einu stjórnborði. Til að fá meiri aðskilnað í umsýslu mismunandi heimasíðna er einfaldast að kaupa tvær vefhýsingar.

meira...
 
Uppsetning léna með stjórnborðinu (cPanel)

Til eru tvær megin leiðir við uppsetningu léna á vefsvæðum. Önnur heitir Parked Domains og hin heitir Addon Domains. Parked domain er lén sem er lagt ofan á annað lén og vísar í raun á sömu vefsíðu/heimasíðu. Hjá okkur eru enging takmörk fyrir því hversu mörg lén geta vísað á sömu vefsíðu.

meira...
 
Prufu / sýndarpöntun

Við bjóðum þeim sem vilja skoða pöntunarferlið án ábyrgðar að gera þykjustunni pantanir. Í pöntunarferlinu er möguleiki á að haka við að verið sé að prófa. Þannig pantanir eru einfaldlega ekki afgreiddar með uppsetningu vefsvæðis en þú færð samt kost á að sjá hvernig ferlið gengur fyrir sig. Þó þarf að setja inn netfang til að sjá staðfestingapósta og slíkt.

 
Öryggismálin í brennidepli

Fyrir miðjan mars 2008 settum við upp nýja gerð eldveggja fyrir megin vefþjóninn okkar. Nýji eldveggurinn lokar aðgangi tölvuþrjóta sjálfkrafa eftir ákveðnum vísbendingum sem þrjótarnir gefa sjálfir með tilraunum sínum. Án eldveggjarins eru kerfin okkar eftir sem áður örugg fyrir, því við höfum lært að treysta varnirnar með árunum og sjá við árásum. Eldveggurinn gefur okkur aukavörn gegn nokkrum tegundum árása sem tölvuþrjótar eru að reyna meir og meir. Lokað er á IP tölur viðkomandi árásaraðila þannig að frá þeirra sjónarhól er eins og vefþjónninn sé ekki lengur til þ.e. hann verður ósýnilegur gagnvart viðkomandi í vissan tíma en það nægir oftast til að fá þá til að missa áhugann.

meira...
 
VEFSÍÐA AF HANDAHÓFI
 BETRI VERÐ: Við bjóðum betri verð á vefhýsingu. Sjá samanburðartöflu og verðdæmi.
Lesa meira...
 MEIRA INNIFALIÐ: Meira pláss fyrir gögnin, engin takmörg á fjölda netfanga, léna, póstlista, MySQL gagnagrunna og óendanlegir stækkunarmöguleikar.
Lesa meira...
 ÁNÆGÐARI VIÐSKIPTAVINIR: Ég er búinn að vera í tölvubransanum í 10 ár og átt viðskipti við marga hýsingaraðila bæði hérlendis og erlendis...
Lesa meira...
 MEIRA ÖRYGGI: Vefþjónarnir okkar eru vaktaðir 24 tíma sólahrings, allan ársins hring. Við fylgjumst með og uppfærum eldveggi...
Lesa meira...
 SKÝRIR SKILMÁLAR: Skilmálarnir eru einfaldir, komast fyrir á einni blaðsíðu og vefjast ekki fyrir neinum. Lesa meira...
 BETRI ÞJÓNUSTA: Símavaktin er opin virka daga frá 9:30-17:00, en utan þess tíma er tölvupóstur skipulega vaktaður.
Lesa meira...

Fréttaveita

Fréttaveita

Add to Google Reader or Homepage

Powered by FeedBurner