| 
						1. Veljið "E-mail accounts..." undir "Tools" valmyndinni í Outlook
						 
						  
						2. Veljið "Add a new e-mail account" og smellið á "Next >"
						 
						  
						 
						 
						3. Veljið "IMAP" og smellið á "Next >"
						 
						  
						4. Sláið inn upplýsingar um netfangið eins og hér nema xxx er skipt                 út fyrir nafnið á léninu
						 
						  
						Ath.
						að lénið getur verið eitt (t.d. netfang.com) en IMAP póstþjónninn annað
						(t.d. mail.xxx.vefir.net). Seinni slóðinn inniheldur oftast notendanafn
						í stað xxx. Við stofnun vefhýsingarinnar fékkstu slóð sem vísar alltaf
						á vefsvæðið þitt og er hún á forminu xxx.vefir.net. Þú sem sagt bætir
						"mail" fyrir framan þá slóð. Einnig má nota einfaldlega mail.vefir.net. Lykilorðið er það lykilorð sem gefið var
						við stofnun netfangsins (helst ekki það sama og aðgangur að stjórnborði
						eða öðru).
						 
						Nota má annan "Outgoing mail
						server (SMTP)" heldur en "Incoming mail server (IMAP)". Sem dæmi má
						nota postur.simnet.is ef þú ert með ADSL tengingu hjá símanum. Þetta getur flýtt fyrir sendingum frá þér. 
						 
						Ef notaður er mail.xxx.vefir.net þarf að setja inn eftirfarandi stillingu               undir "More Settings..."
						 
						  
						Aðra
						stillingar undir "More Settings..." eru t.d. undir General. Þær eru
						ekki nauðsynlegar en geta hjálpað. Ef þú vilt t.d. fá svar á annað
						netfang en sent er frá má setja það í "Reply E-mail:". Annar texti hér
						er einnig valfrjáls.
						 
						  
						 
						 
						Á
						neðangreindri mynd má stilla hvort kerfið opnar internet-tenginguna
						sjálfkrafa ef um upphringisamband er að ræða en oftast nær er þetta
						stillt eins og myndin sýnir.
						 
						  
						Þegar
						hér er komið er uppsetningunni í raun lokið en Outlook býður upp á
						fjölmargar aðrar stillingar og skal hér getið einnar sem getur
						afgerandi áhrif á pósthólfið. Undir Advanced flipanum er möguleiki sem
						heitir "Leave copy of message on server". Þeir sem nota þennan
						möguleika þurfa að vera meðvitaðir um að
						pósthólfið tæmist ekki nema hinn valmöguleikinn séu notaður með þ.e.
						"Remove from server after x days".
						 |