Forsíða Spurt og svarað (FAQ) Hver er afgreiðslufresturinn?
Hversu löng er biðin eftir vefsvæði? Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hversu langan tíma tekur fyrir ykkur að gera klárt fyrir viðtöku á léni eftir pöntun? (Isnic gerir þá kröfu að hýsing léns sé klár áður en lénið er stofnað hjá þeim).

Við reynum að afgreiða pantanir samdægurs og oft náum við að afgreiða aðeins nokkrum mínútum eftir að pöntun hefur borist. Til að gera ráð fyrir öllum hugsanlegum misfellum lofum við 24 tíma afgreiðslu. Um leið og pöntun er afgreidd fær viðskiptavinurinn tölvupóst með öllum upplýsingum sem hann þarf til að tengjast vefsvæðinu og stjórnborðinu og getur byrja að vinna, þ.á.m. að stofna lén hjá Isnic eða öðrum. Flestir erlendir söluaðilar léna gefa viðskiptavinum kost á að leggja léninu þangað til hýsing hefur fundist og Isnic hóf 2007 að veita þessa sömu þjónustu.