Forsíða Spurt og svarað (FAQ) Íslenskir sérstafir í nafni léns
Íslenskir sérstafir í nafni léns Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hafir þú áhuga á að bæta við léni með sérstöfum er ekkert því til fyrirstöðu lengur. Isnic er með sérstakt tilboð til þeirra sem eiga lén sem passa við samsvarandi lén með sérstöfum. Ath. að hugbúnaður gesta þarf að umrita nafn lénsins þannig að ekki er sjálfgefið að hægt sé að slá þessi lén inn hvar sem er. Dæmi: http://www.íkon.is umritast sem xn--kon-qma.is.

Ef fyrri hlekkurinn virkar hjá þér ertu með þær viðbætur í stýrikerfinu/vafranum sem þarf til að umrita sérstafa lén. Firefox vafrinn er með þessari umritun innbyggðri en IE þarf sérstaka viðbót sem þarf að hlaða niður af vef Microsoft.

Eftirfarandi er tilvitnun í texta á vef isnic.is:

"Notkun léna með sérstöfum
Athygli er vakin á að lén sem innihalda sérstafi hafa enn sem komið er mjög takmörkuð not. Ástæðun má rekja til þess að lén með sérstafi eru ekki skráð á sama hátt í lénnafnakerfi netsins (DNS) og lén án sérstafa. T.d. er lénið veiðihundar.is skráð í lénnafnakerfið sem xn--veiihundar-k9a.is. Hér er um að ræða svokallaða ACE umritun lénsins veiðihundar.is. Lénið veiðihundar.is er aðeins þekkt sem lénið xn--veiihundar-k9a.is í lénnafnakerfi netsins.

Það er alfarið á ábyrgð notenda og forrita þeirra að umrita lénnafnið veiðihundar.is í xn--veiihundar-k9a.is áður en uppfletting í lénnafnakerfi netsins fer fram. Þessi umritun er ekki komin í allan hugbúnað sem notaður er. Þess vegna er notkun léna sem innihalda sérstafi enn mjög takmörkuð. Þó nokkrir vafrar hafi þegar þessa umritun þá vantar enn stuðning við notkun léna með sérstafi í netföng í flestan hugbúnað. Ekki er vitað hvenær fullur stuðningur við lén með sérstafi kemur í almennan hugbúnað. "