|
Stefnan
Íkon
ehf. var stofnað 1988 af nokkrum áhugasömum tölvumönnum. Aðaleigandi
fyrirtækisins Ólafur Garðarsson hefur stundað tölvuþjónustu og forritun
á Íslandi og víðar síðan 1985. Markmiðið er að veita bestu þjónustu sem
völ er á á sviði hugbúnaðarþróunar og kerfisþjónustu.
Sagan
Reynslan
spannar öll helstu stýrikerfin (Windows, Macintosh og Unix/Linux). Við
byrjuðum í Macintosh heiminum með námskeið, forritun og fleira en
starfsemin færðist meira og meira yfir í Windows stýrikerfin með
árunum. Síðustu ár höfum við unnið talsvert með Linux stýrikerfi,
sérstaklega í vefhýsingarþjónustunni undir vörumerkinu EDAL.NET.
Sérgrein okkar er gagnagrunnar eins og Oracle en við vinnum einnig með
MS-SQL, MySql grunna og aðra gagnagrunna. Kerfin sem hafa verið hönnuð
á vegum Íkon eru margvísleg og í nánast öllum atvinnugreinum íslensks
atvinnulífs en einnig fyrir aðila í BNA, Englandi og á Spáni.
Framundan
2005
var fjárfest í húsnæði fyrir starfsemina og hafið samstarf við Leiðir
ehf um verkefni. Þeir hafa einnig aðstöðu í nýja húsnæðinu. Vefhýsingin
undir merkinu edal.net hófst 2003 og hefur smám saman undið upp á sig
og er orðin mikilvægur þáttur í rekstrinum. Í febrúar 2006 byrjuðum við
samstarf við nýja kerfisveitu í Bandaríkjunum um hýsingu vefþjóna okkar
og viðskiptavinir okkar eru smám saman að flytja vefi sína yfir á nýju
þjónustuna. Núverandi stefna er að auka veg vefhýsingarinnar í
rekstrinum og auka með því fjárhagslega stöðugleika félagsins. Við
munum þó halda áfram að stækka samhliða hin tvö sviðin sem við byggjum
á, þ.e. kerfisþjónustuna og hugbúnaðarþróunina. Þessi svið styðja hvort
annað á margvsíslegan máta og saman eru þau þær stoðir sem félagið
byggir á.
|
|
Áður en reikningsyfirlit eru send út hafa viðskiptavinir í flestum tilfellum fengið rafrænan greiðsluseðil inn á heimabankann sinn. Vinsamlegast greiðið eftirstöðvar með greiðsluseðlinum. Að svo stöddu erum við ekki komnir með sérstakt innsláttarform fyrir greiðslukort á nýja vefsvæðinu en vanda verður sérstaklega til verksins öryggisins vegna.
Vinsamlegast ath. að vanskil eru send Premium Kredit til innheimtu.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|